Við Fræbbblar tökum þátt í Menningarnótt á Dillon eins og í fyrra.. byrjum að spila hálf fjögur og spilum í hálftíma – Arnór verður reyndar fjarverandi að þessu sinni.
Archive for the ‘Tónlist’ Category
Fræbbblar á Menningarnótt
Posted: ágúst 22, 2013 in TónlistEfnisorð:Dillon, Fræbbblarnir, Menningarnótt
Viltu „Viltu nammi væna?“ væna (væni)?
Posted: ágúst 19, 2013 in TónlistEfnisorð:Fræbbblar, Fræbbblarnir, Viltu nammi væna?
Fyrir áhugasama… þá höfum við Fræbbblar verið að gæla við þá hugmynd að spila plötuna „Viltu nammi væna?“ í heilu lagi á hljómleikum. Staður og stund ekki klár, en væntanlega í vetur, mögulega tengt útgáfu á nýrri plötu.
Við gerum okkur ekki almennilega grein fyrir því hvort það er einhver áhugi eða ekki.
Þannig að áður en við leggjum í vinnu við að æfa og undirbúa þá væri vel þegið að fá einhverja tilfinningu fyrir hvort það er einhver raunverulegur áhugi á þessu.
Facebook „like“ eða athugasemdir við „blogg“ telja eiginlega ekki nægilega mikið.
Þess vegna langar okkur að biðja þá sem raunverulega hafa áhuga á að kaupa nýja lagið okkar, My Perfect Seven, annað hvort á GogoYoko eða tonlist.is. Lagið kostar litlar 100 krónur hjá en á að kosta 120 hjá „tonlist.is“ en er þar í meiri gæðum (við erum reyndar að bíða eftir minni háttar leiðréttingu þar).
Þá má líka veita laginu gengi á vinsældarlista Rásar 2 www.ruv.is/topp30.
Umræða um höfundarrétt og ólöglega dreifingu efnis er orðin ansi ruglingsleg.
Fyrr í vikunni birtist grein í Fréttablaðinu (muni ég rétt) sem var eflaust vel meint til varnar þeim sem eiga efni sem verið er að dreifa ólöglega. Greinin var því miður ruglingsleg og talsvert af misskilningi og jafnvel rangfærslum.. sem gerði þeim hálfgerðan bjarnargreiða sem ætlunin var væntanlega að styðja.
Talsmaður Pírata svaraði svo eitthvað á þeim nótum að þeir væru ekki bófaflokkur og það þyrfti að ræða málið. Ágætt svar, en kannski frekar efnislítið.
Ég hef rætt þetta og skrifast á við marga Pírata og aðra sem áhuga hafa – og satt best að segja fengið lítið um nothæf svör – langlokur um sögulega hluti sem leysa ekkert og svara engu, sumir tala um að ólögleg dreifing sé nú bara allt í lagi og aðrir hafa hugmyndir sem eru kannski ágætar út af fyrir sig (eins og að stytta tíma eftir lát höfundar).. en breyta engu um eðli málsins.
Þannig að mig langar að ítreka spurningu til Pírata.. og fara fram á skýr svör, í texta, ekki á YouTube, ekki með tilvísun í YouTube efni eða greinar eða hugmyndir annarra. Heldur ykkar eigin svör í læsilegum texta, ef ég má vera svo frekur.
1. Finnst ykkur í lagi að dreifa efni í óþökk höfundar?
(já, ég veit að sumir njóta þess að efni er dreift og já ég veit að það er erfitt að stöðva þetta, en það er ekki spurningin, heldur hvort ykkur finnist þetta í lagi?)
2. Finnst ykkur í lagi að sækja efni sem boðið er upp á ókeypis í óþökk höfundar?
Ég veit að þið hafið talað um að það þurfi að ræða þetta og finna lausnir. Sem er gott, en þið hljótið að hafa einhverjar hugmyndir. Nafnið Píratar vísar (amk. sögulega, ef ég hef skilið rétt) í að vera á móti löggjöf („anti piracy) sem var umdeild, þannig að ef ég skil rétt eruð þið „anti – anti – Piracy“.
Það er í góðu lagi að vera á móti.. en það kostar líka kröfu (frá mér amk.) um að koma með betri hugmyndir.
Hverjar eru ykkur hugmyndir? Ekki niðurnegldar, heldur til umræðu. Í hvað vísar Pírata nafnið?
PS. Og að fenginni reynslu verð ég að ítreka ósk um skýr svör og ekki einhverju spjalli út um víðan völl
Bara pólitískt eftirlit, Frosti?
Posted: júlí 23, 2013 in Stjórnmál, Tónlist, UmræðaEfnisorð:Frosti Sigurjónsson, Rúv
Er það ekki ákveðin „rörsýn“ hjá Frosta Sigurjónssyni að ætla að takmarka eftirlit með skoðunum á RÚV við pólitík. Kannski fer svona fyrir góðu fólki þegar það „lendir í því“ að fara að skipta sér af pólitík. Allt í einu virðist allt snúast um pólitík og hún verður upphaf og endir alls.
Ég hef mínar efasemdir um að enginn megi viðra skoðanir á málum sem snerta stjórnmál nema allir flokkar fái sínar mínútur. Fólk sem einhvern tímann hefur lýst yfir stuðningi við flokk „gjaldfærist“ þá væntanlega á tímann sem viðkomandi hefur. Það kostar sennilega einhverjar flækjur í útreikningum ef viðkomandi hefur verið kenndur við fleiri en einn flokk. Þar fyrir utan þarf væntanlega að gæta þess að allir flokkar fái jafnan tíma. Allir flokkar á þingi? Allir flokkar sem buðu fram? Allir starfandi flokkar?
Hitt er stærra atriði að pólitík er ekki eini mælikvarðinn á allar skoðanir.
Hvers vegna að takmarka þetta við svona þrönga sýn, þeas. pólitík… það er fullt af fólki sem hefur skoðanir sem tengist ekki stjórnmálaflokki og skoðanir á hlutum sem hafa ekkert með stjórnmál að gera. Þarf ekki að gæta sama hlutleysis á öllum stöðum?
Það væri reyndar til bóta ef öllum lífsskoðunum væri gert jafn hátt undir höfði í stað þess að ríkiskirkjan væri í lykilaðstöðu.
En þarf svo ekki eftirlit yfir skoðanir á veðri, hvar er gott að búa, matsölustöðum, frammistöðu leikmanna og liða í íþróttum – og auðvitað tónlist.
Mér finnst til dæmis sjálfsögð krafa ef einhver lýsir því yfir í útvarpi að lag einhverrar hljómsveitar sé gott þá komi annar og lýsi því yfir hvað nýjasta lagið mitt sé gott.
Nú eða ekki.
En mér er slétt sama hvort einhver stjórnmálaflokkur fær sanngjarna eða ósanngjarna gagnrýni eða ekki. Hitt er miklu meira virði.
Afmæli Mosa frænda
Posted: maí 9, 2013 in TónlistEfnisorð:Fræbbblarnir, Gamli Gaukurinn, Hellvar, Mosi frændi, Saktmóðigur, Skelkur í bringu
Við Fræbbblar spiluðum á afmælishátíð Mosa frænda á Gamla gauknum í gær.
Stórskemmtileg hljómsveit, Skelkur í bringu, byrjaði… þau voru eiginlega best í örstuttu lögunum, smá „leikhús“ kryddar þetta skemmtilega hjá þeim… minntu mig kannski eilítið á Tiger Lillies, þó þau hljómi auðvitað ekkert svipað. Saktmóðigur kom næst, þéttir að vanda og eiginlega nákvæmlega eins og þeir eiga að vera. Okkur Fræbbblum gekk, að ég held, ágætlega… að minnsta kosti skemmti ég mér vel og fann ekki að áheyrendum leiddist tiltakanlega. Mosi frændi er líka með sérstæðustu hljómsveitum „í bænum“, við spiluðum með þeim á Rokk í Reykjavík 2.0 fyrir ári.. og kannski finnst mér skemmtilegast að heyra þá spila eigin útgáfur af annarra manna efni, mjög fyndið að heyra gömlu lögin í þeirra útgáfu. Hellvar kláraði svo kvöldið og minnti á hvers vegna þau eru ein af mínum uppáhaldshljómsveitum.. ekki á þeim að heyra að þau hefðu ekki náð einni einustu æfingu fyrir kvöldið.
En svona í stuttu máli, stórskemmtilega blanda af hljómsveitum úr öllum áttum.
Og ekki gleyma staðnum, Gamla gauknum, sem er eiginlega uppáhaldsstaðurinn okkar fyrir spilamennsku – góð aðstaða fyrir hljómsveitir, fínar græjur á staðnum og topp hljóðmaður.
Að stela – tónlist eða öðru
Posted: mars 23, 2013 in Tónlist, UmræðaEfnisorð:ólögleg dreifing, ólöglegt niðurhal, tónlist
Umræðan um ólöglega dreifingu og afritun tónlistar dúkkar alltaf öðru hverju upp. Þetta á auðvitað við um sjónvarpsefni, kvikmyndir og hugbúnað, en höldum okkur við tónlistina.
Það er nefnilega alltaf verið að reyna að sannfæra okkur um þetta sé nú ekki svo slæmt. Tónlistarmenn græði nú bara á endanum á að það sé verið að stela frá þeim.
Mér er með öllu fyrirmunað að skilja hvers vegna heiðarlegt og skynsamt fólk leyfir sér að stela tónlist.
Þetta sama fólk stelur ekki hjóli nágrannans, labbar ekki út í næsta bakarí og grípur næsta kleinuhring eða tekur bók án endurgjalds, ekki einu sinni ljósrit.
En einhverra hluta vegna finnst mörgum allt í lagi að stela tónlist.
Og svo upphefst einhver sjálfsréttlætingarkór með hverja rökleysuna á fætur annarri.
Jú, það er auðvelt að afrita tónlist og nýtt eintak af tölvuskrá kostar (nánast) ekkert. En sömu hundalógík mætti færa yfirfæra á bakarann, „hann hendir hvort sem er svo miklu“ eða „ég skil tíkall eftir fyrir hráefninu“.
Nei, þarna virðir fólk það að framleiðslan kostar vinnu og gerir sér grein fyrir að það væru ekki margir bakarar í bænum ef það væri stolið jafnt grimmt frá þeim og tónlistarmönnum.
Það heyrist heldur ekki „ja, bakarinn verður nú svo vinsæll ef ég stel frá honum að þetta er allt í lagi“.
Að ólögmætt niðurhal hafi ekki áhrif á sölu
Posted: mars 22, 2013 in Tónlist, UmræðaEfnisorð:ólöglegt niðurhal, höfundarréttur, tónlist
Ég sé í dag frétt hjá Rúv um rannsókn sem bendi til að ólöglegt niðurhal hafi ekki áhrif á sölu á tónlist, sjá http://www.scribd.com/doc/131005609/JRC79605
Ef „rannsóknin“ er skoðuð nánar kemur fram að lítið sem ekkert styður þessar fullyrðingar. Meira að segja er tekið skýrt fram að tekjur af sölu tónlistar hafi minnkað verulega („revenues decrease drastically“). Þá kemur fram að hegðun notenda er mjög mismunandi eftir löndum.
Þeir segjast reyndar ekki finna nein merki þess að ólöglegt niðurhal hafi áhrif á sölu tónlistar, en það gefur ekki leyfi til að álykta að það sé ekki til staðar. Enda er aðferðin sem þeir beita til að gefa sér að ólöglegt niðurhal hafi ekki áhrif á sölu beinlínis fráleit.
Í rauninni er þetta frekar einfalt.
Það er engin leið að gefa sér að fólk sem sækir tónlist án þess að greiða fyrir myndi ekki kaupa ef ekki væri hægt að sækja hana ólöglega. Það eru fleiri milljónir eða milljónatugir sem sækja sér tónlist ólöglega. Að gefa sér að enginn þeirra myndi í nokkru tilfelli kaupa þá tónlist sem viðkomandi hefur sótt er eiginlega fráleitt.
Að horfa á lækkandi sölutölur á sama tíma og ólöglegt niðurhal fer sívaxandi og halda því fram að engin tengsl séu þarna á milli er galið.
Ef eitthvað er þá fer „neysla“ á afþreyingarefni vaxandi og því ættu tekjur af tónlist að hafa vaxið gríðarlega ef eitthvað er.
Ég geri ekki lítið úr því að netið hefur opnað dyrnar fyrir óteljandi tónlistarmenn. En það er með þeirra vilja og samþykki.
Þá er líka rétt að hafa í huga að sú aðferð að dreifa tónlist á vefnum, td. í gegnum YouTube, hentar ekki öllum tónlistarmönnum og alls ekki allri tegund af tónlist. Mér sýnist (og hef ég engar rannsóknir til að styðja, heldur er þetta órökstudd tilfinning) að tónlist sé sífellt að verða einhæfari og einsleitari.
Jú, og svo enginn misskilningur sé á ferð… ég vil gjarnan sjá breyttar reglur um höfundarrétt og breytt umhverfi. En ekki bulla í mér með forsendurnar…
Að dæma páfann
Posted: mars 16, 2013 in TónlistEfnisorð:Fræbbblarnir, Harpa, Judge a Pope just by the Cover, Norðurljós
Við Fræbbblar gáfum út lagið „Judge a Pope just by the Cover“ – á nýársdag.
Hér: http://www.youtube.com/watch?v=dL0JWTdasw4 er videó með laginu unnið af upptökum Viktors Orra á hljómleikum til styrktar Ingólfi Júlíussyni í Norðurljósasal Hörpu.