Posts Tagged ‘Brexit’

Að kljúfa þjóð

Posted: ágúst 23, 2026 in Umræða
Efnisorð:,

Ég hef nákvæmlega ekki nokkrar áhyggjur af því að þjóðin klofni – hvorki lítillega, hvað þá í herðar niður – við það eitt að ræða kosti og galla aðildar að ESB þegar samningur liggur fyrir. Ég geri frekar fyrir að samþykkja, ekki hvað sem er, en hef nokkuð góða trúa á að við náum ásættanlegum samningi. En ég er fullkomlega sáttur við að þjóðin hafni ef meirihluti tekur afstöðu gegn því eftir málefnalegar umræður.

Það sem gæti klofið þjóðina – varla samt í „herðar niður“ – er ef örfáar hræður djöflast linnulaust í þjóðinni með hömlulausum áróðri, rangfærslum, ýkjum, útúrsnúningum og hreinum lygum. Og að stór hluti þjóðarinnar kokgleypi áróðurinn gagnrýnis- og hugsunarlaus.

Brexit var erfitt fyrir Breta, kannski ekki síst vegna þess að fámennur hópur keyrði þetta í gegn með sams konar aðferðafræði og NEIjarar gera hér á Íslandi fyrir – ekki einu sinni gegn aðild – heldur gegn því einu að fá að sjá hvers konar aðild verður í boði.

Ég hef engar forsendur til að fullyrða að þessi fámenni hópur sé að mestu fólk sem þykist eiga landið og miðin og þykist mega gera hvað sem þeim sýnist. Í öllu falli þá er einn fjölmiðill mjög samstíga í gegndarlausum áróðrinum og ég man ekki til að sá fjölmiðill hafi gert mikið til að skaprauna eigendum sínum.

Og á hinn bóginn dettur mér enginn önnur skýring í hug.

Og það væri skelfilegt er stór hluti þjóðarinnar lætur tuddast í sér til að taka ákvörðun út frá fölskum forsendum.

Hnignun þekkingar

Posted: ágúst 13, 2017 in Spjall, Stjórnmál, Umræða
Efnisorð:, ,

Samsæriskenningar eru auðvitað eldgamlar og stöku sinnum hefur meira að segja verið fótur fyrir þeim. En þessi öld hefur að einhverju leyti litast af uppgangi samsæriskenninganna. Ellefti-september bauð auðvitað upp á alls kyns umræður og vangaveltur. Í kjölfarið var eins og margir ánetjuðust samsæriskenningunum… alls staðar voru samsæri, jafnvel þeir sem upphaflega voru fórnarlömb samsæranna voru nú hluti af þeim, þeir sem ruddu brautina (ef svo má að orði komast) voru hluti af einhverju samsæri. Það voru samsæri komin í hvert horn. Hlýnun jarðar var samsæri, að jörðin væri hnöttótt var samsæri, þoturákir á himni voru samsæri, CIA yfirtók heila fólks, Clinton (og ef ekki allur demókrataflokkur Bandaríkjanna) var kominn í barnavændi á pizzustað :), gott ef sami flokkur var ekki farinn að standa að því að láta myrða fólk, erfðabreytt matvæli voru (auðvitað) eitt stórt samsæri, bólusetningar að sjálfsögðu ekkert annað en samsæri – og ef annað var ekki boði þá voru einhverjir tónlistarmenn annað hvort þátttakendur í samsæri eða fórnarlömb [eins og hverjum sé ekki sama].

Þörfin fyrir næsta „fix“ af samsæri var nánast orðin óbærileg og allt var samþykkt möglunarlaust.

Ég er ekki frá því að þetta sé grunnurinn að ákveðinni heimskun kjósenda og þar af leiðandi upphafið að ákveðinni hnignun sem við erum rétt að fá forsmekkinn af.

Brexit og Trump eru fínasta dæmi um þetta. Ekki svo að skilja að þessar kosningar hafi beinlínis flotið á samsærum. En þeir sem unnu keyrðu á rangfærslum og lygum og fönguðu atkvæða þeirra fáfróðu og auðtrúa.

Þannig virðist dómgreind almennings hefur farið aftur, fólk samþykkir fullyrðingar ef þær eru settar fram í dramatískum YouTube myndböndum, „Photoshoppaðar“ myndir eru góðar og gildar, jafnvel hreinar og klárar lygar, hvers kyns dylgjur eru teknar sem staðreyndir, tíst eru staðreyndir, einföld mistök sannanir um yfirgripsmikil samráð, langsóttar tengingar eru endanlegar sannanir, óljósar getgátur góðar og gildar og fullyrðingar á bloggsíðum nefndar til sögunnar sem rök.

Efasemdir, leit að mótrökum, athugun á sannleiksgildi, einföld rökhugsun er látið liggja á milli hluta.

Þessi grunnur fáfræði og trúgirni eru nefnilega það sem hefur kostað okkur að fáfræðin hefur sigrað.

Og ég er smeykur um að þetta eigi eftir að versna.