Sarpur fyrir september, 2026

Ég kynntist Hólmbert Friðjónssyni, eldri, í gegnum fjölskyldutengsl fyrir rúmlega 35 árum. Hafði auðvitað heyrt mikið af honum enda fylgst vel með fótboltanum hér heima – ímyndin var „harður nagli“ sem hlífði hvorki sjálfum sér né öðrum til að ná árangri í fótbolta, kannaðist auðvitað við að mestu sem öflugan þjálfara.

En Hólmbert var einstaklega ljúfur, viðkunnanlegur og viðræðugóður – og hafði auðvitað mikla þekkingu á fótbolta. Hann var að mestu hættur að vinna og þjálfa þegar við kynntumst, tók við Keflavíkurliðinu í nokkrar vikur og einu af unglingalandsliðunum.

Ekki vantaði að ég heyrði skemmtilegar sögur af honum þegar ég vann í nokkur ár fyrir meistaraflokk karla hjá Breiðablik.

Þegar barnabörnin hans komu var hann stöðugt að hvetja, leiðbeina og þjálfa, ég held að hann hafi ekki misst af einni einustu æfingu, í fyrstu alltaf mættur til að skutla á æfingu, fylgjast með og skila heim.. þegar þau voru komin með bílpróf mætti hann samt – alltaf að fylgjast með og leiðbeina. Enda Hólmbert Friðjónsson, yngri, einn okkar besti fótboltamaður síðustu ára.

Gott dæmi um keppnisskapið er þegar stórfjölskyldan fór, einu sinni sem oftar, saman um verslunarmannahelgina og þá var fótboltaleikur fastur liður. Hólmbert vildi alltaf hafa Iðunni með sér í liði, þó hún hefði aldrei spila fótbolta, hún barðist nefnilega eins og ljón um hvern einasta bolta!

Og þegar hann fann fyrir verk fyrir verk í miðjum leik bað hann konuna sína, Dagmar, að sækja sprengitöflu, tók töfluna, lagði niður í smástund – og var svo kominn inn á völlinn!

Innilegar samúðarkveðjur til allra í fjölskyldunni, Hólmbert var einstakur.

Í tilefni nýlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu þá vil ég ítreka hugmyndir mínar um „menntað lýðræði“.

Í stuttu máli þurfa kjósendur að svara einföldum spurningum um óumdeildar staðreyndir, einfaldlega til að takmarka niðurstöðurnar við atkvæði þeirra sem hafa sýnt þá lágmarkskurteisi að kynna sér um hvað er verið að greiða atkvæði. Atkvæði þeirra sem hafa ekki kynnt sér málið verða einfaldlega ekki talin með.

Um síðustu helgi hefði mátt spyrja, „Er verið að kjósa um aðild að Evrópusambandinu?“ eða „Verða íslensk ungmenni látin gegna herþjónustu ef við höldum viðræðum áfram?“

Hvort tveggja er afdráttarlaust og óumdeilt út frá þekktum staðreyndum – svarið er sannanlega nei.

Atkvæði þeirra sem svara annarri hvorri spurningunni játandi hefðu einfaldlega ekki verið talin með, hafa augljóslega ekki svo mikið sem óljósan grun um hvað er verið að kjósa um.

Ég veit alveg af ýktum og langsóttum tilbúnum dæmum um hvernig mætti misnota svona kerfi. En það er ekkert sérstaklega flókið að vinna sig fram hjá þeim hættum sem eru til staðar.

Til dæmis mætti hugsa að kallaður yrði til hópur, 7, 13 eða 25 manns, hugsanlega rektorar háskólanna, forseti hæstaréttar og fleiri sem ekki er líklegt að eigi sérstakra hagsmuna að gæta. Þessi hópur þyrfti að samþykkja spurningarnar einróma. En hvað ef í öll þessi embætti safnast fólk með annarleg sjónarmið og á þingi verður meirihluti fyrir stórhættulegum ákvörðunum? Já, ekkert sérstaklega líklegt og hvort sem er, ef við erum komin þangað þá er ólíklegt efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu yfirhöfuð.. og þessar skoðanir líkast til hvort sem er með mikinn meirihluta hjá þjóðinni.

Síðasti varnaglinn felst í því að kynna spurningarnar fyrirfram og hvert rétt og óumdeilanlegt svar er. Það verður auðvitað einfaldara að „svindla“ á þessu, en ég ímynda mér að það vefjist fyrir einhverjum að svara þvert á eigin forsendur – og ef viðkomandi hefur fyrir því að kynna sér þetta, þá er í góðu lagið að telja atkvæðið með. Og það er líka erfiðara fyrir „óprúttna“ aðila að hringja til dæmis í unga kjósendur og segja „heyrðu, þú verður að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni annars verður þú kallaður / kölluð í Evrópuherinn, en þú þarft samt að svara spurningunni þannig að þú vitir að þetta er útilokað“.

Ég er sannfærður um að við myndum taka betri ákvarðanir ef við notum þessa aðferð.

Ég geri mér grein fyrir það hringja viðvörunarbjöllur – sem er gott, svona hugmyndum á að taka með fyrirvara og gagnrýni.