Samt.. áfram

Posted: ágúst 30, 2026 in Stjórnmál, Umræða
Efnisorð:,

Ég neita því ekki að ég er mjög svekktur með niðurstöður gærdagsins.

Auðvitað sætti ég mig við að þetta sé niðurstaðan.

Í þetta skipti get ég samt ekki borið virðingu fyrir niðurstöðunni, einfaldlega vegna alls þess fjölda sem greindi frá atkvæði sínu með því að styðjast við rangfærslur – auðvitað ekki allir, en ótrúlega stór hluti ef marka má handahófskennt úrtak.

Ég held reyndar að þessar kosningar hafi verið mistök, vel meint, en samt mistök – það þarf ekki að benda á annað en að fjöldi fólks hélt að það væri að kjósa um eitthvað allt annað en kosningin snerist um.

En þetta er langtíma verkefni.

Til skamms tíma þarf að leggja af ríkisstyrki til fjölmiðla sem standast ekki lágmarks kröfur.

Þá þarf að skattleggja fyrirtækin sem telja sig eiga landið og miðin og mokuðu peningum í grímulausan áróður með rangfærslum, rökleysum, útúrsnúningum, afbökunum og hreinum lygum.

En til lengri tíma litið er þetta spurning um menntun.

Það þarf leggja áherslu á að kenna að lesa sér til gagns og vinna úr upplýsingum. Þessu er klárlega mjög ábótavant.

Og það þarf líka að kenna muninn á rökræðum og rifrildi og persónulegum árásum. Það kom oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fyrir að einhver gerði grein fyrir atkvæði sínu og lét fylgja rök sem héldu ekki vatni. Ég man ekki til að í eitt einasta skipti hafi viðkomandi þakkað fyrir leiðréttingar, skoðað gögnin betur og jafnvel skipt um skoðun. Undantekningarlaust voru viðbrögðin eitthvað á þessa leið „ég má hafa mína skoðun, vertu ekki ráðast á mig“.

Kannski eigum við ekkert erindi á meðal siðaðra þjóða fyrr en þetta er komið í betra lag?

Lokað er á athugasemdir.