Fjölskylda, ættingjar og vinir Salóme Mistar fagna lífi hennar í dag – ákaflega viðeigandi en um leið tími mikillar sorgar.
Salóme var bráðgreind og með mikla réttlætiskennd og samúð með þeim sem urðu fyrir hvers kyns óréttlæti.
Auðvitað kemur margt upp í hugann, áhuginn á hvers kyns borðspilum sem hún lærði og spilaði vel nánast fyrirhafnarlaust. Áhuginn á tónlist, hún vann okkur Steina í SingStar (eða hvað það nú heitir) þegar við vinirnir heimsóttum fjölskylduna í Lúxemborg fyrir nokkuð löngu – gott og vel, það var kannski ekki erfitt að vinna mig, en það þarf svolítið til að hafa betur gegn Steina!
En aðallega situr eftir óbilandi elja við baráttuna fyrir hvers kyns réttlæti, þvílík orka og vinnusemi hjá manneskju sem var mikið veik og þurfti að hafa mikið fyrir hversdagslegum hlutum.
Innilegar samúðar kveðjur til ykkar allra – um leið og við erum þakklát fyrir að hafa kynnst henni.