Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Björgvins Halldórssonar.
Við þekktumst svo sem ekki mikið, kynntist honum lítilega fyrst við kvikmyndagerð þegar ég var að vinna við Óðal feðranna – en þá sjaldan að við hittumst fór alltaf vel á með okkur – hlýr og jákvæður.
Og þó svo við værum nú kannski á sitt hvorri hillunni þegar kom að tónlist – bæði stefnum og fagmennsku, sem var nú kannski ekki mín deild 🙂 – þá fundum við nú nokkra sertifleti, síðast í hléi hjá Elvis Costello og Nick Lowe í Hörpunni, sagðist nú aðallega hafa komið til að hlusta Nick, sem ég hélt að ekki margir hér heima vissu hver væri.