Sennilega er HM 2014 í fótbolta eitthvert besta stórmót sem haldið hefur verið í fótbolta. Til þess að gera fáir dauðir leikir, mikið af mörkum, enn meira af næstum því mörkum að ógleymdum frábærum markvörslum og mikilli „dramatík“.
En ég er samt að hafa áhyggjur af því hvert fótboltinn stefnir.
Brassarnir voru „sparkaðir niður“ í fyrstu leikjunum. Þeir mættu í gær og spörkuðu leikmenn Kólumbíu niður. Sem aftur svöruðu fyrir sig með því að stórslasa einn besta leikmann heims, sem missir í kjölfarið af þeim leikjum sem eftir eru í mótinu. Og við missum af honum.
Það hefur verið bent á í kjölfar bitsins hjá Suarez að það séu nú fleiri dæmi um grófa og stórhættulega hegðun, sem menn komist upp með án mikilla refsinga. Þetta hefur verið sagt Suarez til varnar og sem rök fyrir því að hans bann fyrir ítrekuð brot hafi verið of langt. Þetta er auðvitað kjaftæði, hann átti sitt bann skilið og jafnvel lengra. Hitt er svo annað mál að miklu fleiri leikmenn eiga skilið að fá gott frí frá fótbolta.
Ég veit að fótbolti er leikur með snertingu. En hvaða snertingar eru leyfðar og hvernig er ágætlega vel skilgreint.
Í leik Brasilíu og Kólumbíu í gær flautaði dómarinn á svona um það bil fimmta hvert brot. Hann var samt stöðugt flautandi og leikurinn hvað eftir annað stopp. Á endanum var einn leikmanna stórslasaður. Viljandi. Einn sá besti í heimi.
Það er stöðugt verið að halda í leikmenn, toga í peysur, fara örlítið utan í, grípa í, setja úr jafnvægi, sparka aðeins í leikmann, smá snerting við boltann um leið og andstæðingurinn er straujaður, klipið, kýlt.. og svo á hinn bóginn verið að þykjast detta eða meiða sig til að fá eitthvað frá dómaranum.
Það er einfalt að hreinsa fótboltann af þessum sóðaskap. Fyrir það fyrsta á að aðstoða dómara við að grípa öll tilfelli með myndavélum. Gult spjalt og 10 mínútur af leikvelli fyrir hvert brot þar sem farið er í leikmann í stað bolta.. mögulega ein aðvörun fyrir fyrsta brot ef saklaust. Kannski mætti á móti bíða með rautt spjald eftir þriðja gula spjaldinu. Og leikmaður á ekki að komast upp með að þykjast vera að reyna að fara í boltann, það er hans ábyrgð að snertingin við andstæðinginn sé leyfileg. Sama gildir um hvers kyns leikaraskap og óheiðarleika.
Myndum við fá sjö rauð spjöld í hverjum leik? Nei, leikmenn læra strax..það tekur ekki langan tíma að hreinsa fótboltann. Og ef það verður gert þá sjáum við bestu leikmenn heims óáreitta og óslasaða – leikurinn flæðir og að minnsta kosti fyrir minn smekk verður hann miklu skemmtilegri.