Þá er loksins komið að útgáfu á nýrri Fræbbblaplötu, „… vita betur!“.
Við höldum upp á útgáfuna á Dillon, laugardaginn 8. ágúst, seinni partinn, kannski 16:30 eða svo – ekki útgáfuhljómleikar, þeir koma í haust, en öll lögin verða spiluð hátt og skýrt, amk. tvisvar.
Þessi plata hefur verið nokkuð lengi í vinnslu, fyrstu upptökur voru hjá Sveini Kjartanssyni í Sýrlandi 2019, næst hjá Birgi Jóni Birgissyni í Sundlauginni 2021 og svo aftur hjá Svenna í Sýrlandi 2024. Við höfum svo verið að taka upp söng og auka gítara hjá Rikka. Svenni hljóðblandaði lögin og sá um frágang, „masteringu“.
Lögin „Nóg (er meira en nóg)!“ – þar sem Pétur Pétursson og Þorsteinn Hallgrímsson sungu bakraddir með okkur – og „Stormur í blíðunni“ – þar sem Andrea Gylfa syngur með okkur – komu út sérstaklega en fengu ekki, að mér fannst, verðskuldaða athygli.
Að hluta til voru lögin að slípast til á hljómleikum og við vildum taka upp aftur en ætli aðal flöskuhálsinn hafi ekki verið sá að ég gat ekki skrifað texta. Þetta hafðist á endanum – góð törn í Budapest og önnur hjá Kela og co. á Langaholti – og ég er svona að mestu þokkalega sáttur – þó mig langi endalaust að snyrta til og betrumbæta.
Við höfðum aðeins á bak við eyrað að vera ekki að endurtaka okkur of mikið, helst ekki líkt neinu sem við höfðum gert áður – en samt þannig að það færi ekkert á milli mála hvaða hljómsveit væri á ferðinni. Það má svo deila um hvernig til tókst, en ég er nokkuð sannfærður um að okkur hafi tekist vel til, en auðvitað skiptir mín skoðun litlu!
Enda geri ég mér enga grein fyrir því hvernig hún virkar og alveg eins líklegt að gamlir „aðdáendur“ verði fyrir vonbrigðum – nú eða ekki!
Það kom upp í spjalli um 10cc að sú hljómsveit hafi verið einhvers konar „prog-pop“.. kannski flokkast þetta sem „prog-punk“ – veit ekki og ekki mitt að skilgreina.
Platan er í boði á öllum streymisveitum (sem við vitum af) og kemur á vinyl í haust, jafnvel geisladiskum, en varla kassettum.
Ég var spurður hvort nafnið væri ekki full yfirlætislegt.. jú, það má vera, nema við séum að gera aðeins grín að okkur sjálfum. Ekki veit ég – eða jú, ég veit, en ætla ekki að segja.