Megas

Posted: júlí 10, 2026 in Minningar, Tónlist

Þá er Megas látinn, innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina.

Við þekktumst svo sem ekki mikið, spiluðum reglulega saman á Menningarnótt í portinu á bak við veitingastaðinn Við Tjörnina, sem stóð fyrir hljómleikunum. Megas sem hluti af MegaSukk og ég með Fræbbblunum. Ég man eftir nokkrum góðum stundum eftir hljómleikana, forvitnilegt spjall (reyndar ekki alltaf gott að skilja) – en hann var af þeirri kynslóð að þurfa að fara í hljóðfæraverslanir og kaupa nótur af nýjum lögum, td. Elvis Presley, til að fylgjast með.. það var svona happa og glappa á þeim tíma hvort og hvenær plötur bárust til landsins og hvað var spilað í útvarpi.

Ég kynntist tónlistinn hans fyrst þegar Kiddi, bróðir minn, keypti litla plötu, með lögunum „Spáðu í mig“ og „Komdu og skoðaðu kistuna mína“. Þarna var einhver ferskur vindur – kraftur, húmor – og kannski það sem skipti mestu, hann gerði það sem honum sýndist og var ekkert að eltast við staðla um hvernig popp/rokk stjörnur ættu að vera.

Ætli það hafi ekki opnað fyrir mér dyr sem skipti meira máli en tónlistin og textarnir. Enda veit ég vel að þegar kemur að lögunum hans þá eru miklu heitari aðdáendur, fólk sem hefur fylgst með hverju spori og kann lögin. Og ég var ekkert alltaf heillaður af sömu lögum og aðrir, en það er bara mín sérviska og mínar takmarkanir.

Lokað er á athugasemdir.