Lýðskrum í Reykjavík?

Posted: maí 13, 2026 in Samfélag, Stjórnmál
Efnisorð:,

Það vakti athygli mína þegar forsvarsmaður eins flokksins sem býður fram í Reykjavík afgreiddi mörg önnur framboð á einu bretti sem „lýðskrum“ – þar með talið Pírata sem hafa nú kannski átt hvað heiðarlegusta og málefnalegustu borgafulltrúa síðustu ára.

Vissulega á hugtakið „lýðskrum“ við um mörg framboðin – framboð sem stíla inn á mannfyrirlitningu, fordóma og takmarkanir á sjálfsögðum mannréttindum – framboð sem höfða til fólks með litla þekkingu og fólks sem kannski vill, „ranglega“, kenna öðrum um eigin stöðu, fnykur af málflutningi ómerkinga vestanhafs.

En „lýðskrum“ getur líka tekið á sig aðrar myndir.

Er það ekki „lýðskrum“ að bjóða fram fólk sem hefur lítið fram að færa annað en að hafa verið vingjarnlegt andlit í fjölmiðlum sem valkost til að stýra borginni? Sporin ættu kannski að fæla..

Og er það ekki „lýðskrum“ að koma fram og þykjast ætla að bæta rekstur borgarinnar en vera svo varla læs á reikninga borgarinnar? Og hafa jafnvel sögu af því að hafa gefið eignir borgarinnar?

Og er það ekki „lýðskrum“ að gagnrýna borgarlínu – sem jafnvel fulltrúar sama flokks í öðrum sveitarfélögum hafa stutt – án þess að hafa nokkuð fram að færa annað en að halda að það sé hægt að spóla til baka til 1960?

Og er það ekki „lýðskrum“ að staglast á eins ómerkilegu málefni og bílastæði eru nú reyndar, sérstaklega vegna þess að staða þeirra hefur sennilega aldrei verið betri?

Það er ekkert leyndarmál að ég hef stutt Pírata síðustu árin og kem til með að greiða þeim atkvæði mitt um helgina.

Samstarfsflokkar þeirra hafa að flestu leyti staðið sig vel síðustu árin.. þetta er ekkert einfalt og það getur verið snúið að hafa fullkomna þjónustu og hafa reksturinn í lagi á sama tíma. Samfylkingin fellur svolítið á því fyrir mig að hafa farið á einhvers konar flótta, í stað þess að standa við sín verkefni.

Lokað er á athugasemdir.