Viðræðuhöfnunarhópurinn

Posted: mars 10, 2026 in Samfélag, Stjórnmál, Umræða
Efnisorð:,

Er alltaf öðru hverju að sjá athugasemdir við atkvæðagreiðslu um ESB viðræður, ekki athugasemdir við aðild, heldur það að yfirleitt ræða málið.

Nú er ég yfirhöfuð bara ekki á því að það sé neitt að því að ræða málið og skoða frekar.

En þeir sem virðast vera að pissa á sig af hræðslu við það eitt að málið sé rætt virðast falla í nokkra sérstaka flokka, gjarnan fleiri en einn:

  • eru stuðningsmenn Talibana stjórnarinnar vestanhafs
  • hafa ítrekað talað gegn mannréttindum
  • hafa sérstaklega beitt sér gegn réttindum LGTB+
  • tala eins og þeim sé umhugað um efnahag Íslands en geyma stórar upphæðir í skattaskjólum
  • telja að við getum sko gert miklu betur en þetta Evrópusamband, hafa samt setið sjálf(ir) við stjórnvölinn að einhverju eða öllu leyti síðustu áratugi án þess að ráða við verkefnið
  • eiga nokkuð langa sögu af fráleitum rangfærslum
  • virðast í afneitum gagnvart vísindum hvort sem það snýr að loftslagsmálum eða bólusetningum
  • eru eiginlega áskrifendur að hvaða glórulausri samsæriskenningu sem finnst undir (og yfir) sólinni
  • gjarnan rökþrota og svara með aulabröndurum og útúrsnúningum þegar ekki er annað upp á tengingnum
  • virðast ekki geta lesað sér til gagns um einfaldar bókanir

Nú er kannski ekki rétt að afgreiða málflutning út frá hver ber hann á borð… en þetta er eiginlega ekki einleikið.

Lokað er á athugasemdir.