Er alltaf öðru hverju að sjá athugasemdir við atkvæðagreiðslu um ESB viðræður, ekki athugasemdir við aðild, heldur það að yfirleitt ræða málið.
Nú er ég yfirhöfuð bara ekki á því að það sé neitt að því að ræða málið og skoða frekar.
En þeir sem virðast vera að pissa á sig af hræðslu við það eitt að málið sé rætt virðast falla í nokkra sérstaka flokka, gjarnan fleiri en einn:
- eru stuðningsmenn Talibana stjórnarinnar vestanhafs
- hafa ítrekað talað gegn mannréttindum
- hafa sérstaklega beitt sér gegn réttindum LGTB+
- tala eins og þeim sé umhugað um efnahag Íslands en geyma stórar upphæðir í skattaskjólum
- telja að við getum sko gert miklu betur en þetta Evrópusamband, hafa samt setið sjálf(ir) við stjórnvölinn að einhverju eða öllu leyti síðustu áratugi án þess að ráða við verkefnið
- eiga nokkuð langa sögu af fráleitum rangfærslum
- virðast í afneitum gagnvart vísindum hvort sem það snýr að loftslagsmálum eða bólusetningum
- eru eiginlega áskrifendur að hvaða glórulausri samsæriskenningu sem finnst undir (og yfir) sólinni
- gjarnan rökþrota og svara með aulabröndurum og útúrsnúningum þegar ekki er annað upp á tengingnum
- virðast ekki geta lesað sér til gagns um einfaldar bókanir
Nú er kannski ekki rétt að afgreiða málflutning út frá hver ber hann á borð… en þetta er eiginlega ekki einleikið.